Færsluflokkur: Íþróttir

Sjáið leikinn á SportTV

Í þriðja sinn á mánuði geta áhorfendur SportTV séð bikar fara á loft í kvöld og það annað kvöldið í röð. SportTV mun sýna beint frá stórleiknum á Selfossi í kvöld, leikurinn hefst klukkan 19:30 og útsending um tíu mínútum áður.

SportTV var á staðnum þegar KR tryggði sér deildarmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í Stykkishólmi og var með frábæran oddaleik KR og Hamars í Iceland Express deild kvenna í gær í beinni þar sem KR tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. Það fer því bikar á loft á SportTV annan daginn í röð!

Fylgist því vel með leiknum á SportTV.is í kvöld þar sem spennan mun ráða ríkjum og frábær stemning skila sér til áhorfenda því uppselt er á leikinn á Selfossi og von á miklum hávaða, spennu og skemmtilegum handbolta þar sem allt er undir.


mbl.is Afturelding eða Selfoss upp?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir bikarleikirnir verða í beinni útsendingu

Það er vert að vekja athygli á því að allir þrír bikarleikirnir um  helgina verða í beinni útsendingu á SportTV.is. Þar að auki verður fyrri Evrópuleikur kvennaliðs Fram og undanúrslitaleikirnir í Reykjavíkurmótinu í fótbolta í beinni á SportTV um helgina.

Það ættu því allir að sjá eitthvað við sitt hæfi á SportTV.is um helgina.


mbl.is Bikardagur hjá Valsmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafnarfjarðarslagurinn verður í beinni á SportTV

Þar sem að húsið (Kaplakriki) tekur ekki nema 2000 og eitthvað manns í sæti þá komast ekki allir á völlinn sem vilja sjá leikinn. En örvæntið ekki, leikurinn verður í beinni á SportTV.is og því á enginn að þurfa að missa af þeirri miklu skemmtun sem leikir þessara liða eru.

FH sigraði báða leiki liðanna í Kaplakrika á síðustu leiktíð, í deild og í bikar, í miklum spennuleikjum fyrir fullu húsi.  Haukar svöruðu með því að vinna báða deildarleikina á Ásvöllum á síðasta tímabili og bætti um betur með því að leggja FH í fyrsta deildarleik liðanna á þessu tímabili. Í desember mættust liðin í bikarkeppninni í Kaplakrika og náðu Haukar að hefna fyrir bikarósigurinn frá því árinu á undan í tvíframlengdum leik sem áhorfendur gleyma seint.

Nú á FH harma að hefna en augljóst er að Haukar ætla að sigra erkifjendurna og nágrana sína í fimmta sinn í röð og ná fimm stiga forystu á toppi deildarinnar en FH freistar þess að minnka bilið í eitt stig og galopna toppbaráttuna.

Ekki missa af frábærum leik í beinni á SportTV ef þú kemst ekki á völlinn.


mbl.is Stórslagur í Hafnarfirði í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slagurinn um Suðurlandið í kvöld

Slagurinn um Suðurlandið, viðureign Selfoss og ÍBV, verður í beinni útsendingu á SportTV.is í kvöld. Er þetta fyrsta beina útsending vetrarins frá 1. deildinni í handbolta í vetur sem er fagnaðarefni. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og útsending nokkrum mínútum áður.

Selfoss er á toppnum í deildinni með 14 stig í 8 leikjum. ÍBV er aðeins tveimur stigum á eftir í þriðja sæti en hefur leikið leik meira en Selfoss. Þetta er því sannkallaður toppslagur í deildinni og má búast við hörkuleik líkt og þegar liðin mættust í Eyjum 14. nóvember þegar Selfoss marði sigur á lokasprettinum.

Sjá má leikinn í beinni á SportTV.


SportTV.is hlutinn tekinn út úr fréttinni

Það vekur óneitanlega athygli að í frétt mbl.is sé eitt atriði tekið út úr fréttatilkynningunni sem Handknattleikssambandið sendi út rétt fyrir klukkan 12. Það að allir leikir mótsins verða sýndir beint á SportTV.is, hver ástæða þess sé skal ósagt látið en hér má sjá alla fréttatilkynninguna í heild sinni:

 

Flugfélags Íslands Deildarbikarinn 2009

 

Milli jóla og nýárs mun fara fram keppni um Deildarbikar HSÍ en sú keppni hefur verið haldin á þessum tíma undanfarin 2 ár. Í ár ber keppnin heitið Flugfélags Íslands Deildarbikarinn.

 

4 efstu lið í N1 deildum karla og kvenna fara í keppnina og er miðað við stöðu liðanna eftir seinustu umferð fyrir jól þar sem allir hafa leikið jafn marga í leiki.

 

Í karlaflokki eru það Haukar, FH, Akureyri og Valur og í kvennaflokki er það Valur, Stjarnan, Fram og Haukar.

 

Leikið verður í Íþróttahúsinu Strandgötu í Hafnarfirði.

 

Miðaverð er 1.000 kr fyrir hvorn dag, fyrir 16 ára eldri, en frítt inn fyrir 15 ára og yngri.

 

Allir leikir mótsins verða sýndir beint á www.sporttv.is.

 

Leikjaplanið er eftirfarandi:

 

Sunnudagur 27.desember 2009

 

FÍ Deildarbikar kvk

kl.12.00

Valur - Haukar

FÍ Deildarbikar ka

kl.14.00

Haukar - Valur

FÍ Deildarbikar ka

kl.16.00

FH - Akureyri

FÍ Deildarbikar kvk

kl.18.00

Stjarnan - Fram

   

Mánudagur 28.desember 2009

 

FÍ Deildarbikar ka

kl.18.00

Úrslit

FÍ Deildarbikar kvk

kl.20.00

Úrslit

 


mbl.is Leikið í Strandgötu á nýjan leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bikardráttur í beinni

Nú klukkan 14 verður dregið í átta liða úrslit Subwaybikars karla og kvenna í körfubolta og verður drátturinn í beinni útsendingu á SportTV.is.

Dráttur Handknattleikssambandsins í átta liða úrslit Eimskipsbikarsins var í beinni með góðum árangri seint í nóvember líkt og val Körfuknattleikssambandsins í Stjörnuliðin. Ekki missa á þessari frábæru þjónustu við íþróttaáhugafólk á SportTV.is.

 Liðin í kvennaflokki:
Fjölnir
Hamar
Haukar
Keflavík
Laugdælir
Njarðvík
Snæfell
Þór Akureyri

Liðin í karlaflokki:
Breiðablik
Fjölnir
Grindavík
ÍR
Keflavík
Njarðvík
Snæfell
Tindastóll


Blak í beinni í kvöld

Einn leikur er í beinni útsendingu á SportTV.is í kvöld. Fylkir tekur á móti KA í Mikasa deild kvenna í blaki klukkan 20:00. Útsending hefst skömmu áður.

KA er eina ósigraða lið deildarinnar með 8 stig úr fjórum leikjum en Fylkir er einnig með 8 stig en úr fimm leikjum. Það er því sannkallaður toppslagur í boði fyrir þá áhorfendur sem leggja leið sína í Fylkishöllina eða sitja fyrir framan skjáinn og horfa á SportTV.


Væri stórfrétt værum við í eigu 365?

Einstakur viðburður í íslensku sjónvarpi (vefvarpi) verður á SportTV.is á laugardaginn. Þá verða þrír tvíhöfðar, þ.e. sex leikir í þremur íþróttagreinum, blaki, handbolta og körfubolta, þrír leikir í karlaflokki og þrír í kvennaflokki, sýndir beint á SportTV.is. Engin sjónvarpsstöð hefur sýnt eins marga innlenda íþróttaviðburði á einum degi beint í íslensku sjónvarpi enda fjallar engin sjónvarpsstöð eins vel um íslenskar íþróttir og SportTV.is.

Nú er það svo að hvorki Ríkið né 365 eiga SportTV. Fyrirtækið er lítið sprotafyrirtæki sem er í sjálfu sér ekki í samkeppni við neinn annan fjölmiðil þar sem enginn annar fjölmiðill sérhæfir sig í sýningum á íslensku íþróttaefni. Engu að síður hefur enginn fjölmiðill séð ástæðu til að fjalla um þennan einstaka viðburð á laugardaginn en fréttatilkynning var send á alla helstu fjölmiðla landsins í vikunni. Því veltir maður því fyrir sér hvort þetta væri ekki stórfrétt hjá flestum fjölmiðlum landsins ef við værum í eigu 365 líkt og "útþurrkun" (wipeout) hefur tröllriðið flestum miðlum 365 síðasta mánuðinn?

Hvað sem því líður þá verður þessi þrefaldi tvíhöfði í beinni á laugardaginn og verður það skemmtilegur endir á stórri viku á SportTV þar sem þrettán beinar útsendingar voru á sex dögum. Allt íslenskt íþróttaefni.

Laugardagur:
13:30 Stjörnuleikur kvenna (körfubolti)
15:30 Stjörnuleikur karla (körfubolti)

14:00 Valur - HK N1 deild kvenna (handbolti)
16:00 Valur - FH N1 deild karla (handbolti)

14:00 HK - KA Mikasa deild kvenna (blak)
16:00 HK - KA Mikasa deild karla (blak)


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband