SportTV.is

Vefurinn Sporttv.is er sjónvarpsstöð á netinu sem sérhæfir sig í útsendingum íþróttaviðburða. Til að byrja með verður sýnt beint frá hinum ýmsu íþróttaviðburðum svo sem handbolta, hnefaleikum, fimleikum og blaki. Er svo stefnan sett á að bæta fleiri íþróttagreinum við áður en langt um líður.

Síðan fór í loftið 7. september 2009 þegar gamlir leikir voru settir inn á vefinn úr safni Júlíusar Jónassonar auk þess að fyrstu viðtöl síðunnar voru tekin upp og sett á vefinn.

Auk beinna útsendinga verður hægt að finna hina ýmsu dagskrágerð á vefnum sem mun snúa að íþróttum og íþróttamönnum.

Netmiðillinn er sívaxandi og sýna áhorfstölur að Sporttv.is er komið til að vera.  Framtíðin virðist því björt og er stefnan tekin á HD útsendingar eftir áramót, ef ekki fyrr.

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Guðmundur Marinó Ingvarsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband