Allir bikarleikirnir verða í beinni útsendingu

Það er vert að vekja athygli á því að allir þrír bikarleikirnir um  helgina verða í beinni útsendingu á SportTV.is. Þar að auki verður fyrri Evrópuleikur kvennaliðs Fram og undanúrslitaleikirnir í Reykjavíkurmótinu í fótbolta í beinni á SportTV um helgina.

Það ættu því allir að sjá eitthvað við sitt hæfi á SportTV.is um helgina.


mbl.is Bikardagur hjá Valsmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikurinn í beinni á SportTV

Það verður vonandi mikið um dýrðir og spennan í algleymingi í Kaplakrika í kvöld. Þeir sem komast ekki á völlinn þurfa ekki að örvænta því leikurinn verður sýndur beint á SportTV.is. Útsendingin hefst rétt fyrir leikinn sem hefst klukkan 19:30.
mbl.is Hefnir Fram eða fer FH í Höllina annað árið í röð?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafnarfjarðarslagurinn verður í beinni á SportTV

Þar sem að húsið (Kaplakriki) tekur ekki nema 2000 og eitthvað manns í sæti þá komast ekki allir á völlinn sem vilja sjá leikinn. En örvæntið ekki, leikurinn verður í beinni á SportTV.is og því á enginn að þurfa að missa af þeirri miklu skemmtun sem leikir þessara liða eru.

FH sigraði báða leiki liðanna í Kaplakrika á síðustu leiktíð, í deild og í bikar, í miklum spennuleikjum fyrir fullu húsi.  Haukar svöruðu með því að vinna báða deildarleikina á Ásvöllum á síðasta tímabili og bætti um betur með því að leggja FH í fyrsta deildarleik liðanna á þessu tímabili. Í desember mættust liðin í bikarkeppninni í Kaplakrika og náðu Haukar að hefna fyrir bikarósigurinn frá því árinu á undan í tvíframlengdum leik sem áhorfendur gleyma seint.

Nú á FH harma að hefna en augljóst er að Haukar ætla að sigra erkifjendurna og nágrana sína í fimmta sinn í röð og ná fimm stiga forystu á toppi deildarinnar en FH freistar þess að minnka bilið í eitt stig og galopna toppbaráttuna.

Ekki missa af frábærum leik í beinni á SportTV ef þú kemst ekki á völlinn.


mbl.is Stórslagur í Hafnarfirði í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bronsdrengurinn verður í eldlínunni

Stórleikur FH og Akureyri verður í beinni útsendingu á SportTV.is í kvöld. Ólafur Andrés Guðmundsson verður með FH og verður áhugavert að sjá hvort reynsla hans af Evrópumeistaramótinu skili sér í betri leik en reikna má með því að Hreinn Þór Hauksson, frábær varnarmaður norðanmanna, reyni að halda honum í skefjum. Það verður mjög spennandi einvígi í leik sem ætti að vera mjög spennandi.

FH sigraði fyrri leik liðanna í deildinni á Akureyri auk þess að slá Akureyri út úr bikarnum, einnig fyrir norðan. Það er því spurning hvort FH-ingar séu með tak á Akureyringunum en bæði lið erum með 11 stig, þremur stigum á eftir Haukum í topp sætinu.


mbl.is Sannarlega kominn tími til að byrja á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slagurinn um Suðurlandið í kvöld

Slagurinn um Suðurlandið, viðureign Selfoss og ÍBV, verður í beinni útsendingu á SportTV.is í kvöld. Er þetta fyrsta beina útsending vetrarins frá 1. deildinni í handbolta í vetur sem er fagnaðarefni. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og útsending nokkrum mínútum áður.

Selfoss er á toppnum í deildinni með 14 stig í 8 leikjum. ÍBV er aðeins tveimur stigum á eftir í þriðja sæti en hefur leikið leik meira en Selfoss. Þetta er því sannkallaður toppslagur í deildinni og má búast við hörkuleik líkt og þegar liðin mættust í Eyjum 14. nóvember þegar Selfoss marði sigur á lokasprettinum.

Sjá má leikinn í beinni á SportTV.


Spennandi seinni hluti mótsins framundan

Það er ljóst að þessi mikli liðsstyrkur Hauka mun styrkja lið þeirra verulega og auka enn á þá spennandi baráttu sem framundan er í Iceland Express deildinni í vor. Gríðarleg barátta er um að komast í úrslitakeppnina en fjögur efstu lið deildarinnar komast í hana. Njarðvík og Haukar eru með 8 stig en Keflavík er í fjórða sæti með 10 stig. Grindavík er með 14 stig og Hamar 16. Fátt virðist geta komið í veg fyrir að KR verði deildarmeistari en liðið er ósigrað með 22 stig í 11 leikjum.

Hægt verður að fylgjast með framvindunni í Iceland Express deild kvenna, og karla, í vor í beinni útsendingu á SportTV.is en  um helgina verður nágranaslagur Keflavíkur og Njarðvíkur í beinni útsendingu og því um gríðarlega mikilvægan leik að ræða fyrir bæði lið í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni.

Hægt er að sjá dagskrá SportTV.is um helgina hér.


mbl.is Dönsk landsliðskona í raðir Hauka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt í beinni á SportTV

Hægt er að sjá alla leikina í deildarbikarnum í beinni útsendingu á SportTV.is, smellið hér til að fara beint í beina. Ekki missa af þessari skemmtilegu keppni fjögurra bestu liða N1 deildar karla og kvenna í haust.
mbl.is Bikarslagur í Strandgötu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SportTV.is hlutinn tekinn út úr fréttinni

Það vekur óneitanlega athygli að í frétt mbl.is sé eitt atriði tekið út úr fréttatilkynningunni sem Handknattleikssambandið sendi út rétt fyrir klukkan 12. Það að allir leikir mótsins verða sýndir beint á SportTV.is, hver ástæða þess sé skal ósagt látið en hér má sjá alla fréttatilkynninguna í heild sinni:

 

Flugfélags Íslands Deildarbikarinn 2009

 

Milli jóla og nýárs mun fara fram keppni um Deildarbikar HSÍ en sú keppni hefur verið haldin á þessum tíma undanfarin 2 ár. Í ár ber keppnin heitið Flugfélags Íslands Deildarbikarinn.

 

4 efstu lið í N1 deildum karla og kvenna fara í keppnina og er miðað við stöðu liðanna eftir seinustu umferð fyrir jól þar sem allir hafa leikið jafn marga í leiki.

 

Í karlaflokki eru það Haukar, FH, Akureyri og Valur og í kvennaflokki er það Valur, Stjarnan, Fram og Haukar.

 

Leikið verður í Íþróttahúsinu Strandgötu í Hafnarfirði.

 

Miðaverð er 1.000 kr fyrir hvorn dag, fyrir 16 ára eldri, en frítt inn fyrir 15 ára og yngri.

 

Allir leikir mótsins verða sýndir beint á www.sporttv.is.

 

Leikjaplanið er eftirfarandi:

 

Sunnudagur 27.desember 2009

 

FÍ Deildarbikar kvk

kl.12.00

Valur - Haukar

FÍ Deildarbikar ka

kl.14.00

Haukar - Valur

FÍ Deildarbikar ka

kl.16.00

FH - Akureyri

FÍ Deildarbikar kvk

kl.18.00

Stjarnan - Fram

   

Mánudagur 28.desember 2009

 

FÍ Deildarbikar ka

kl.18.00

Úrslit

FÍ Deildarbikar kvk

kl.20.00

Úrslit

 


mbl.is Leikið í Strandgötu á nýjan leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðurkenningar handboltamanna í beinni

Nú klukkan 12 hefst bein útsending SportTV.is frá tilkynningu Handknattleiksforystunnar á úrvalsliðum umferða 1-7 í N1 deild karla og umferða 1-9 í N1 deild kvenna. Fylgist með verðlaunaafhendingunni á SportTV.is með því að smella hér.

Útsending hefst klukkan 12:00.


Bikardráttur í beinni

Nú klukkan 14 verður dregið í átta liða úrslit Subwaybikars karla og kvenna í körfubolta og verður drátturinn í beinni útsendingu á SportTV.is.

Dráttur Handknattleikssambandsins í átta liða úrslit Eimskipsbikarsins var í beinni með góðum árangri seint í nóvember líkt og val Körfuknattleikssambandsins í Stjörnuliðin. Ekki missa á þessari frábæru þjónustu við íþróttaáhugafólk á SportTV.is.

 Liðin í kvennaflokki:
Fjölnir
Hamar
Haukar
Keflavík
Laugdælir
Njarðvík
Snæfell
Þór Akureyri

Liðin í karlaflokki:
Breiðablik
Fjölnir
Grindavík
ÍR
Keflavík
Njarðvík
Snæfell
Tindastóll


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband